i.n.g.u.n.n
05.04.2007 02:30:14 / ingunng

Úfff..

VÁ hvað það er langt síðan ég skrifaði hérna...
Ég er að spá í að hætta bara með þessa síðu.. hreinlega nenni þessu ekki lengur og hef heldur ekki tíma..
En ég hef nokkrar fréttir síðan í fyrra hehe...
Jói ástin mín spurði mig um að giftast sér 24. des 2006! :) og auðvitað sagði ég JÁ!!! var svo hamingjusöm!! og er það!! hehe.. fékk svaka fallegann hring með 10 demöntum!!! :D
Svo er ég að fara til Íslands eftir 20 daga!! :D og verð þar líklega til 1. sept.. jafnvel lengur. Er búin að fá vinnu og ætla að búa með Jóa í íbúðinni sem Guðný frænka leyfði okkur að vera í núna í sumar. 
Hver ætlar á Josh Groban tónleikana 16. maí???
Jói bauð mér á þá! :)
Ég er að ljúka fyrsta árinu í háskólanum hérna úti í Kanada.. á bara eftir að klára prófin sem byrja 9. apríl! er ekkert svo stressuð .. ha ha 8| vonandi gengur það bara vel.
Systa er að fara í fyrramálið til Evrópu með skólanum... fer til 5 landa.. hún er geðveikt spennt fyrir því sem er ekki skrítið hehe. Skemmtu þér vel!!! :)
Jæja ég ætla að fara að sofa.. hmmm ef þið viljið skrifa eitthvað í gestó þá endilega látiði vaða. Gaman að heyra í ykkur!
Skrifa kannski eitthvað hérna í sumar....
Chao!!
P.S. Til Hamingju með afmælið Jói minn.. elska þig!!! :D kisssskissss

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 20:32:04 / ingunng

28 ágúst!!

Á afmæli í dag!! :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 02:53:06 / ingunng

Vá frábær dagur!!!

Hæhæ..þetta var stór dagur!!
Dagurinn byrjaði þannig að ég fór á fund, vinkona mín þarf að setja saman svona kvöld fyrir fólk úr bænum hehe veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra það en það verða dansar, leikrit, fólk að syngja, kvöldmatur og svona og hún bað mig um að vera kynnir! hehe en það verður líka ein önnur stelpa að hjálpa mér með þetta og við vorum bara að æfa okkur og svona í morgun fyrir þetta. Þetta verður annað kvöld 25 ágúst. Svo kom í ljós að við eigum að vera "fínar" þannig við ætlum að vera í fínum kjólum og hælum.. en ég átti engann svona fínan kjól allavega ekki stuttann og bara sumarkjóla hehe þannig ég fór í mollið að leita mér að kjól.. og viti menn ég fann nokkra flotta en valdi einn ótrúlega fallegann kjól heheh :)  Svo þegar ég kom heim þá voru mamma og pabbi búin að ákveða það að fara út að borða.. við fórum á einn stað hérna sem heitir Boston Pizza..ótrúlega góður matur og svo þegar við vorum búin að borða þá tók pabbi vídeóvélina upp og byrjaði að taka upp og snúði vélinni bara að mér og ég bara oookay hvað er í gangi?? hehe svo sagði mamma að því ég ætla að halda upp á afmælið mitt á sunnudaginn (á afmæli á mánudaginn 28 ágúst) að ég myndi kannski vilja nota gjöfina mína þá.. svona þegar ég er með stelpunum og svona. Svo rétti mamma mér box með slaufu og korti á og ég opnaði boxið og þar var minna box og einn geisladiskur, svo opnaði ég hitt boxið og þar var lyklakippa með húslyklinum á.. og í þessu boxi var ennþá minna box.. svo þegar ég opnaði það getiði hvað var í því??!!!!  BÍLLYKILL!!! ég fékk bíl í afmælisgjöf!!!! :D:D Svo sagði mamma og pabbi mér að fara út að leita af honum á bílastæðinu fyrir utan veitingastaðinn hehehe svo sá ég hann með risa slaufu á húttinu :o :) Ég fékk rauðann 2006 Pontiac G6.. með öllu, sjálfskiptur og alles!! vvvááá ég trúði þessu varla, ég skalf alveg..og geri enn hehe því mamma var sko búin að segja að ég fengi aaaaaallllsssss ekki bíl hehe. Síðan fór ég náttla í bíltúr og það er alger draumur að keyra þennan bíl, eins og maður sé ekki að keyra neitt! Það var fullt af fólki að horfa á okkur fyrir utan veitingastaðinn hehe og allir brosandi og sögðu vá frábær gjöf, til hamingju með afmælið og svona :) hehe bara gaman..

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 02:41:09 / ingunng

14 ágúst!!

Og það er kominn 14 ágúst!! Akkúrat 4 ár síðan ég flutti til Kanada :)
Við lögðum af stað frá Íslandi 13 en komum hingað 14!  Vá hvað þetta er fljótt að líða!! úff..8|  :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 03:44:58 / ingunng

Sunnudagur..

Hellú aah sunnudagskvöld..eða reyndar þá er kominn mánudagur hehe en já þessi helgi var allt í lagi.. það gerðist ekkert mikið. Var mest hérna heima, allir farnir að sóla sig einhversstaðar hehe.. en já í gær þá fór ég niðrí miðbæ skoða í búllurnar og svona, keypti mér Diesel gallabuxur á 4000 kall!! já annað en á Íslandi hehe það er svona að búa í útlöndum :D hehe.. svo fékk ég bréf frá háskólanum og í því stóð að þau fengu lokaeinkannirnar mínar frá framhaldsskólanum og að ég kemst pottþétt í háskólann í haust!! :) það er léttir! Í fyrsta skipti í langann tíma þá er ekkert spes veður núna :( eða reyndar á föstudaginn þá var 28 stiga hiti þannig ég fór með famelíunni út úr bænum og fórum að sulla í einhverju vatni og svo fórum við í sund sem var ágætt, aðeins að brúnka sig. En svo í gær þá var bara enginn sól og 20 stiga hiti :S sem var eiginlega kalt hehe það er svona þegar maður er búin að venjast hitanum! Svo rigndi í dag þannig ég nennti ekki að fara neitt, var bara heima að hjálpa til þar og svo fór ég að mála aðeins. Ég horfði á Miss Universe í kvöld og Miss Puerto Rico vann! hehe hmm.. er ekki viss hvort hún hefði átt að vinna eða hvað finnst ykkur?..  Svo um helgina þá heyrði ég í útvarpinu að The Pussycat Dolls og Black Eyed Peas eru að koma hingað 4 september!! úfff það verður fjör.. eru með tónleika saman og ég held að það verða seldir 20.000 miðar á þá og þetta er úti.. verð að fara á þá :p Sá The Pussycat Dolls í Florida og það var sko fjör!!  Ég er að spá í að fara að lesa meira af íslenskum bókum e-ð því ég er orðin hræðileg í henni.. er farin að mixa íslenskunni og enskunni saman hehehe :S ekki mjög gott 8|  Vonandi skiljið þið þetta sem ég er að bulla hérna hehe en jæja ég er farin að sofa..
Later! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 02:41:44 / ingunng

Aaah sumar :)

Hæhæ vá hvað það er langt síðan ég bloggaði, þetta gengur ekki!
Ég skráði mig í háskólann í gær, eða reyndar hvaða bekki ég vil gera og klukkan hvað og svona.. fékk inngöngu í skólann fyrir löngu. En já ég er að fara að læra sálfræði. Ég held að það verður bara mjög spennandi :) eða vona það! hehe ég veit að það á sko eftir að vera erfitt og mikið að lesa!! Ég þarf semsagt að fara í ensku, stærðfræði, sögu, spænsku og sálfræði :)
Ég er bara búin að vera að njóta þess að vera í sumarfríi undanfarið, liggja í sólbaði og vera með vinum og verlsa 8).. það er sko geggjað veður hérna, glampandi sól allann daginn og 25-29 stiga hiti :) enda er ég komin með sæta brúnku :D hehe 8)
Vinkona mín hringdi í mig í morgun og var að segja mér að hún sá Hilary Duff niðrí miðbæ hehehe :o hún var nebbla með tónleika hérna í miðbænum í kvöld, en það var uppselt á nokkrum mínutum :S hehe en mér er svosem sama!
En já heyrðu þið eruð ekki nógu dugleg að kvitta í gestó!! hehe allir skrifa í gestó.. even though I don't know you!!! ;)  langar að vita hvað ykkur finnst um síðuna..
Ég set nýjar myndir bráðum á síðuna og ég skal reyna að blogga meira...
Later! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 20:08:27 / ingunng

Laugardagur

Aaaah 26 stiga hiti og sól, getur það verið betra? .. Lá í sólbaði í dag og fékk mér sæta brúnku hehe :D  En svo gafst ég upp eftir 2 tíma, alltof heitt!! Þetta er eins og vera á Flórída aftur..alveg æðislegt :) 

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 19:22:18 / ingunng

Fimmtudagur..

Jæja.. þá er skólinn loksins búinn! :D:D Fór í dag og náði í einkannirnar.. svo fórum við vinkonurnar að taka helling af myndum, líke með kennurunum hehe :p Það tók okkur 2 tíma :S hehe :) Er ekki ennþá búinn að átta mig á því að ég er búin með framhaldsskólann.. átta mig örugglega ekki á því fyrr en ég fer í háskólann í haust! :) Það verður sko spennandi! Við vinkonurnar fórum í mini-golf í gær..ég vann!! :p og svo fórum við út að borða :) það var mjög skemmtilegt.
Jæja.. hef ekkert meira að segja í bili..chao!

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 21:27:03 / ingunng

Hún á afmæli í dag..hún á afmæli í dag...

Til hamingju með 12 ára afmælið litla systa!! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 21:43:41 / ingunng

Fimmtudagur..

Vá þetta er búin að vera svo löng vika.. og ekki er hún búin! Ég ætla reyndar ekki í skólann á morgun :lol:..það er bara eitthvað assembly í fyrramálið og svo bara tveir tímar eftir hádegi..sem eru ekki mikilvægir þannig við vinkonurnar ætlum bara að sleppa því :D Förum bara að versla :D svo ætlum við á Da Vinci Code..marr verður að sjá hana er það ekki? Er eitthver búin að sjá hana? Hvernig fannst ykkur hún?  Jamm ég vona að hún sé góð..kemst að því á morgun!
Svo eru einhverjir tónleikar niðrí miðbæ annað kvöld.. er að spá hvort maður ætti að fara á þá hmm..
Það er svo leiðinlegt i skólanum núna, erum bara að fara yfir allt sem við erum búin að gera á árinu..undirbúa fyrir prófin. Ég fer í próf ensku próf 13 júní, stæ 14 júní, jarðfræði 15 júní og efnafræði 19 júní.. svo er ég alveg búin í skólanum og komin í sumarfrí 22 júní :D:D
En vá.. ég fór í stæ tíma í morgun og við fengum prófið okkar til baka sem við gerðum um daginn.. mér fannst það soldið erfitt, skildi ekki allt og ég fékk 9.3 á því 8| hvernig fór ég að því?!?!? hahaha :D
Við fengum litla stelpu (tík) seinasta laugardag.. það er Shih Tzu og hún er brún, hvít og svört aaaalgjör dúlla!! En við erum ekki enn búin að ákveða nafn fyrir hana :S það er svo erfitt að velja.. eruð þið með einhverjar uppástungur??? ;)
Hún er algjör rúsína og svo dugleg.. sefur alla nóttina í bælinu sínu og pissar og gerir allt svoleiðis á mogganum á gólfinu..:) *stolt systa* híhí :D
Set myndir bráðum á síðuna!!
En jæja.. segi bæ í bili..laterrr

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 23:08:37 / ingunng

:)

ATH: Allir sem skoða þessa síðu verða að skrifa í gestabókina!!!  nei segi bara svona, en það væri bara gaman að heyra í ykkur ;)
Mér líður miklu betur núna.. eftir aðgerðina, ennþá soldið aum en það er allt í lagi.
Á morgun er föstudagur jeijjj! Fer í litun og klippingu eftir skóla :D svo eftir það þá fer ég og sæki vinkonurnar og við ætlum í bíó og svo út að borða eftir á og eitthvað svoleiðis, það verður fjör! :haha: Svo þarf ég að læra um helgina.. ooooh prófin eru að nálgast :S þau byrja 13 júní hjá mér en svo verður skólinn búinn 22 júní :D SUMARFRÍ, vá það verður skemmtilegt!!.. fer vonandi til Íslands, og til Toronto og Montréal :) svo kemur Jói :D:D hehe MISS YOU!
En jamm ætla að fara og horfa á So you think you can dance
See yaaa!
P.S. Kvittiði í gestó ;);)

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 20:07:05 / ingunng

Erfiður dagur..

Já það má segja að þetta er búinn að vera erfiður dagur! Það er soldið búið að vera að angra mig síðan seinasta laugardag eins og ég var með kúlu neðst á bakinu..mjög skrítið hehe og það er bara búið að vera að versna og svo í morgun ákvað mamma að fara með mér upp á spítala...ég vildi það ekki fyrst en mamma sagði að við færum og ekkert annað með það! hehe svo beið ég heillengi eftir lækninum og hann skoðaði mig svo þurfti hann að láta annann lækni koma og skoða þetta svo vildi hún láta skurðlækni koma og skoða þetta líka og þau vissu alveg hvað var að og ég þurfti að fara í aðgerð í morgun. Það var ekkert smá sárt, hann deyfði mig en vá hvað það var sárt. Svo er þetta mjög aumt eftir á.. þetta er neðst á bakinu þannig það er mjög vont að sitja..ligg bara hérna í sófanum og hef ekkert að gera nema horfa á sjónvarpið og vera í tölvunni. En ég þakka bara mömmu fyrir að vera svona þrjósk og fara með mig á spítalann!! haha..þetta á eftir að taka nokkrar vikur að jafna sig :S Þá veit ég hvað ég geri þessa helgi.. ekki neitt!!! ooh pirrrandi :( En jæja, ég blogga aftur fljótlega.. munið að kvitta í gestabókina eða commenta ;) bæbææ.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 17:56:01 / ingunng

Nýtt

Vá ég er ekki búin að skrifa í þessa dagbók lengi!
En já ég var að setja soldið nýtt inn á síðuna..undir "Um mig.."
Endilega kvittiði í gestabókina eða kommentið.
Bææ ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 00:43:33 / ingunng

Algjör rúsína :)

Hellú! Hvað segiði gott? Ég segi bara allt fínt sko.. ekkert mikið búið að gerast þessa viku, bara helling af lærdómi :S ooh leiðinlegt!! Það eru bara u.þ.b 30 dagar eftir af skólanum :D Keypti mér nýjar píanó bækur í gær og er að fara að spila lagið Seasons of Love frá myndinni Rent.. spila það á tónleikunum með systu. elska þetta lag :)
Það er íslenskur kall sem á heima hérna úti og hann á konu sem er héðan og þau voru að eignast lítinn strák :) fórum í heimsókn til þeirra í kvöld.. hann er algjör rúsína! :D
Annað kvöld fer ég líklega með stelpunum einhvert, gera einhvað skemmtilegt ;)
Bið að heilsa í bili..

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 02:31:26 / ingunng

Komin heim :)

Aah er komin heim :) Það var geðveikt gaman í Flórida!!! Ferðin byrjaði skuggalega samt, hröpuðum næstum því :S ég var sofandi í vélinni og vaknaði við það að við vorum að hraba og allir öskrandi, ég hef aldrei verið svona hrædd áður..ekki gaman að upplifa þetta og sem betur fer náði flugmennirnir vélinni aftur upp!!  Við komust heil á húfi til Orlando og við gistum á geggjuðum stað.. Orange Lake Country Club og Resort..eigum hlut í því :) Við gerðum alveg helling þarna úti, fórum í Busch Gardens og Universal Studios sem eru skemmtigarðar með rússibönum og svona og við fórum til Miami, á frægu Daytona Beach og á tónleika með Pussycat Dolls sem var rosalega gaman! :D fékk líka að halda á alvöru alligator 8| haha eins og að koma við plast eða leður.. mjög skrítið..svo verslaði ég náttúrulega smá, fékk mér Chanel tösku :D híhí.. set myndir bráðum á síðuna frá Flórida !! Svo brann maður smá í sólinni, enda var 30+ stiga hiti..úff.. svo komum við heim í 4 stiga hita..brr kaltttt! En komin með sæta brúnku :D  Þetta var mjög langt ferðalag..flugum frá Orlando til Toronto og þurftum að bíða þar í 6 og hálfann tíma svo til Halifax og svo St. John's.. en það var sko þess virði :) Oggg svo var promið mitt daginn áður en við fórum og það var ROSALEGA gaman váá..vorum seinust á dansgólfinu það var svo mikið fjör og svo fórum við nokkrir vinir saman á sportbar og svo heim til mín eftir promið.. getið skoðað myndir frá því hérna á síðunni..þetta kvöld var ólýsanlegt!.. skemmtum okkur þvílíkt mikið. Jæja endilega verið dugleg að komment og skrifa í gestabókina ;) bæbææ

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2